Johnny the salesman

Skoðið sölusíðuna

16.05.2007 14:25:48 / jonhelgi

Jæja það er að koma sumar og sólin rís

Sæl veriði,

 

Vá sá í morgun að það er sko sannarlega farið að koma sumar þó svo að hitinn sé ekki alveg að fylgja aðstæðum, var hálf andvaka í nótt og um hálf fimm fór ég frammúr og þá var sólin að koma upp í vaðlaheiðinni ekkert smá flott veður, en svo náði ég að sofna og vakanaði um 11 leytið og vitir menn, þá var skýjað og frekar svalt ekta íslenskt veður ekki satt!

 

margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast og ég veit að spaugstofan er sennilega búin núna en það var margt að gera á þessum tíma við vorum að flytja í keilusíðuna og breyta til þar. svo er bara svo margt hægt að gera á Þessum tíma annað en að hanga í tölvu og blogga....

 

Núna er ég að fara út í sölumennsku á Herbalife vörum, þetta eru vörur sem ég hafði aldrei trú á frá því að ég heyrði um þær fyrst en þær eru sko búnar að sanna sig hjá mér sjálfum. eg sem er ekki fyrir að taka pillur og annað sklíkt og hef alltaf haft mikinn mótþróa gagnvart auka næringarefnum og hugsaði alltaf með mér "til hvers að fá sér auka næringarefni, maður fær þetta bara í fæðunni," en svo varð mér það ljóst að fæðan sem flest allir borða í dag er orðin svo næringarsnauð miðað við hvernig fæðan var fyrir um 20árum hvað þá 50 árum. hamborgarar og unnar matvörur og hversu margir af minni kynslóð borða kartöflur reglulega fyrir utan franskar og flögur og svo er verið að nota alskyns efni í matargerð og eitur við ræktun á ávöxtum og erlendu  grænmeti það er alveg ágætt að velta þessu fyrir sér...t.d. gat ég aldrei borðað venjulegan morgunmat fyrr en ég prufaði herbalife. en herbalife kemur ekki í staðinn fyrir venjulegan mat heldur er þetta uppfylling með mat og auka næring....

endilega hafiði samband ef einhverjar spurningar vakna! jonasdis@simnet.is

    8660565.

 

en ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili

G.B.

Jón H. 


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 20:25:14 / jonhelgi

Gott kvöld

Sæl veriði,

 

í kvöld er laugarsdagskvöld og spaugstofan er ekki fyrr en tæpleg hálf ellefu sem er ekki mjög gott. en annars á að sýna og keppast um þau lög sem komust áfram í undankeppninni fyrir eurovision og það lag verður sent sem vinnur í kveld.

 

úff strákar, konudagurinn er á morgun, hvað á að gera. allt sem ég ætlaði að gera er búið að stinga uppá frá konunni sjálfri. en það hlítur eitthvað að koma á óvart, vona ég.... en það kemur bara í ljós.....

 

jæja segjum þetta gott í bili nú er útsendingin að byrja.....

 

 

kve. jón H 


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 21:53:07 / jonhelgi

Hvað segiði á að blogga.

Sæl Veriði.,

ég er búinn að vera frekar daufur undanfarið í bloggskriftum en eg bæti aðeins úr því núna, það sem er efst á baugi er að þorrablótið er næstu helgi og er það nokkuð spennandi, en um síðustu helgi var reynt að láta á það reyna hvort væri fært út í fjörður á jeppum, ég og hjalti fórum ásamt okkar dömum og tveim öðrum. það endaði nú þannig að patrollinn sem ég var á vildi bara ekki lengra sama hvað var reynt hann sat bara fastur alltaf í sömu brekkunni þó það væri búið að þjappa og þjappa fyrir hann, hjalti fór á Izhanum útum allt á meðan ég var að dunda mér. en við náðum allavega hálfa leið á toppinn.

svo er það bara að vinna ræktin borða og skúra passion þetta reglulega. en svo á kallin víst afmæli í næstu viku.

en ég læt þetta nægja í bili við að heilsa í bili. nú eru breytingar á sölusíðunni.

kv Jón H.

» 8 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 16:52:09 / jonhelgi

hæhæ

góðan daginn gott fólk, helgin var nokkuð góð að vanda, það var skellt sér í laufabrauð hjá tengdafjölskyldunni og svo komið við heima í sveitinni og skorið í nokkrar kökur hjá minni fjölskyldu. en á sunnudag var svo farið í Hlíðarfjall og rennt sér aðeins á bretti. þetta var bara þrusu gaman allt saman en svo erum við ásdís að fara út í lok vinunnar til köben. en bið að heilsa í bili

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 15:24:00 / jonhelgi

Kaldhæðni eða hvað....

Nú skal blogga;

Nú hef ég loksins tíma til að blogga, kaldhæðnislegt eða hvað nú er ég veikur og þá get ég loksins bloggað.

Nú er ég hættur að keyra landshluta á milli hjá sambo og farinn að vinna hjá Ískraft að selja rafmagnsvörur

ég var áðan búinn að skrifa ´fína og skilmerkilega færslu hér áðan sem einhverra hluta vegna heftur dottið út þannig að ég er frekar fíldur út í þetta all saman.

Kartöflubóndinn brá sér í nýja fjósið í Dunhaga um helgina og auðvitað með öllara um hönd ég var að aðstoða hann Hjalta ásamt Eið og Gunna og var þetta alveg magnað svo var borðaður alveg helvíti góður matur og skellt sér ´svo í pottinn og í sjallan á sálina nema hvað.

mannlaus bíll ekur á Volvo Kartöflubónda, um daginn þá vildi það til að bíll nágranna okkar ásdísar rennur af sínu stæði mannlaus þvert yfir götuna og beint aftan á volvo og tjónaðist gerandinn þónokkuð en á volvo sést voða lítið eitt nema rispa og uppábrot í stuðara

fleira verður það ekki í bili bið að heilsa öllum

kv. Jón H. sölumaður

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 18:25:37 / jonhelgi

Jæja nú eru undur og stórmerki að gerast!!!

jæja Jón Helgi er mættur

það er langt um liðið síðan ég bloggaði síðast en eg er samt ekki hættur því. það er sumar og ég nenni ekki að hanga í tölvunni til að gera e-h svona.

eins og vanalega hef ég nóg að gera og er bara að vinna og svona btw ennþá hjá sambó að keyra núna á dalvík og ólafsfjörð. og ótrúlegt en satt þá var bara bísna mikil menning og hreyfing á dalvík alla þessa viku enda fiskidagurinn í gær eins og flestir vita. en þar er fólk saman komið til að éta fríttt. og ótrúlegt hvað fólk getur orðið frekt það ætlast til að fá bara það sem það vill. hvernig getur maður ætlast til að fá mikið þegar maður er að fá gefins. ég held að fólk hafi misskilið málsháttinn "betra er að gefa en þiggja" og snúið honum í að "betra er að þiggja en gefa".
ég var að búa til kaffi þarna og óli stef og Helgi voru að afgreiða. fólk sem var að fá kaffi hjá þeim var bara að biðja um 2-4 bolla. hvað er að. upphaflega er þetta bara ætlað til að fólk fái að smakka af hinu og þessu. en maður sá fólk með poka og safna góðgæti saman og hinu og þessu sem var gefins þarna, og hvað svo!!!!?

ég læt þessa ritningu liggja í bili.

kv. Jón H.


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 12:39:04 / jonhelgi

Vondur dagur!

Að vakna við að geta ekki andað vegna slens er það versta sem ég get upplifað, og hósta upp slími og báðar nasir stíflaðar, þá er ég hræddur um að kafna.... já, þetta er ekki spennandi tilfining svona í morgunsárið í byrjun nýrrar vinnuviku.

það hefur ekki farið frammhjá neinum að hér norðanheiða er búið að vera ískalt undanfarna viku og er ekki bót á í bráð, það er einmitt ástæðan fyrir veikindum mínum.

það er greinilegt að enginn þorir að koma sinni skoðun á framfæri í pistlinum hér á undan en ég hvet alla til að verja sinn málstað

ég kveð þá í bili

Jón H.


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 19:10:26 / jonhelgi

frosinn á fingrunum.

Nohh, ég get skrifað aftur.

það vakti ekki mikla lukku þetta með appelsínurnar. hehe.

ég var að koma inn er búinn að vera í fríi frá sambó í viku að verða og er að vinna heima. það er bullandi kuldi úti núna ég var að krókna og er að klára að setja upp rennihurð og hefur það verið svolítið bras því að rafmagnsskynjarar er ekki það skemmtilegasta þegar kemur að villumeldingum.

en aftur að pælingum,  ef það væru ekki til karlar, gætu þá konur eingöngu séð um að halda mannkyninu við.?????

endilega kvittiði og komið með spásseringar um þessa pælingu"!!!!

bæó J´´on haá

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 22:29:35 / jonhelgi

Vangaveltur!!

Hæhæ, Hvenig væri ef appelsínur væru ekki appelsínugular, væru kannski bara bláar. hmm. þá hétu þær kannski bar blásínur. þær eiga náttúrulega ekki að vera svartar, því þá hétu þær sennilega svartsínur, bara smá pæling.

í dag er 1. maí og er ekki efst í huga manni að það sé verkalíðsdagur íslands, heldur afmælisdagur Tómasar Ýmis heitins. nokkrir vinir komu saman í tilefni dagsins og hittust að möðruvöllum í skíðadal og borðuðu pizzur í boði Óskars pabba tómasar, og svo var farið að leiði hans minnst hanns. til hamingju með daginn kallinn, ég efa ekki að þú sért í fjörinu að golfa í tilefni dagsins.

en já, fjólublásínur er það til. en rú, er það litur, ég meina rúsínur hehe. rú þýðir kannski bara gamall s.s gamlar appelsínur verða rúsínur. ne smá pæling. en þetta er bara gömul vínber.

úff, hefði geta horft uppá mótorhjólakappa lenda framan á bíl efst í bólstaðahlíðinni .þ.e.a.s. í blindbeyjunni, þar sem hann kom á mikilli siglingu og ætlaði sér frammúr bínum hjá mer sem er by the way 22m að lengd, en það kom bíll í beyjuna sem kallinn sá ekki og ég gaf stefnuljós til vinstri þannig að hann hægði á sér og beið fyrir aftan þar til við vorum búnir að mæta bílnum þá gaf ég honum stefnuljós til hægri og hleifti honum frammúr, kallinn var frekar ánægður með þetta enda veifaði hann mikið til baka þegar hann var kominn frammúr.

þetta er gott í bili, ég reyni eins og ég get að blogga heyrumst.


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 18:14:31 / jonhelgi

Páskadagur!

Jæja, hvað segiði þá, það er páskadagur í dag og allir haf náttúrulega fengið sér páska egg í tilefni dagsins, er það ekki?

s.l. föstudag var haldið út í fjörður, nánar tiltekið í Hvalvatnsfjörð sem er við utanverðan Eyjafjörð ef menn vita það ekki. þar var nauðsyn á vel útbúnum bílum og vélsleðum ef eitthvað átti að komast áleiðis. á leiðinni mættum við jeppahóp úr Grindavík sem voru 8 patrol jeppar breyttir til helvítis, með allan þann búnað sem á þurfti að halda..... en þetta var mögnuð ferð....

í kveld er ráðgert að fara út á lífið .þ.e í sjallan ef nennirinn er fyrir hendi. sem hann er allavega núna í þessum töluðu orðum. en ætli maður reyni ekkki að fara í heilasellubardaga allavega eitthvað fram á annan í páskum en það verður nokkuð ljóst að eitthvað af heilasellum eiga eftir að falla meðan á bardaganum stendur.

þetta er bara nokkuð fínn pistill í bili, verðir sæl.

kv. Sigurður H Richter.

» 7 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 18:29:39 / jonhelgi

Fyrsta færsla í dagbók..........

Vitir menn!

Seint koma sumir en koma þó, það er mottóið mitt í dag. ég er einn óduglegasti bloggari jarðar þótt víðar væri leitað...! Fyrir þá sem vita ekki þá er þetta hann Jón Helgi sjálfur.

Í dag er Sunnudagur, reyndar síðasti sunnudagur fyrir páska, gaman að vita hehe.8)

Ég er pínu fegin að ég fái að halda mig norðan heiða næstu vikuna þ.e.a.s. vera ekki að fara eitthvað og gista annanhvern dag annarstaðar t.d í RVK það er pínu tilbreyting að vera allt í einu bara alla daga vikunar heima hjá sér.

já, í gær var ég í alveg ágætis partýi, hjá henni Evu Maríu og þar var skálað og haft gaman af og haldið svo á kaffi Ak og gert hvern óskundan af fætur öðrum allt kvöldið. svo ekki sé minnst á myndirnar sem voru teknar þar úfff. maður bara að dansa uppá borðum, já eins og forðum hehe.:haha:

http://kaffiakureyri.is/SiteData/pictures/06_%E1ri%F0%202006/04_apr%EDl/08_08%20dj%20%E1str%F3s/P1100101.JPG



þetta læt ég duga í bili sem fyrsta færsla í dagbók.....!!!

kv. Jón H.


» 3 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
Kynntu þér Leyndarmál alheims.
Bíomyndin The Secret er athygglisverð áhorfs endilega kynnið ykkur Lögmál "Love of a attraction"
Skemmtilegt
Myndir....
Vetrarsport & Björgun
Tónlist & Gítarsíður
Þarftu að finna E-h?
Lærðu á hlutina!
Vantar þig eitthvað!